Röddin þín helst þín
Félagasamtökin Myndarsögur gefa út fanga. og eru ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga í þjónustu okkar. Hafðu samband á post@líf.is vegna gagna, eyðingar eða spurninga.
Þessar upplýsingar ná til fanga. á iPhone, iPad, Apple Watch og Android. Þær gilda frá 22. nóvember 2026.
Allt byrjar á tækinu
Lotur, hljóðtökur, skrif, myndir, myndskeið, tímalínur, handrit, möppur og röðun eru geymd í appinu á tækinu þínu. Engin innskráning þarf til að nota fanga. Við fáum ekkert af þessu nema þú veljir talgreiningu, fanga-möppuna eða birtingu á iss!.
Úrappið geymir upptöku á úrinu þar til síminn hefur staðfest að hún sé vistuð. Hún fer beint á milli úrs og síma með WatchConnectivity, ekki um okkar þjóna.
Myndavél og hljóðnemi eru aðeins notuð þegar þú biður um það, og þú stjórnar heimildunum í stillingum tækisins. Myndaval kerfisins afhendir appinu aðeins þær myndir og myndskeið sem þú velur.
Talgreining
Þegar fanga. leggur talið niður fer hljóðið, í um 22 sekúndna bútum, til talgreiningar Lífs. Hún keyrir á okkar aðgangi hjá Cloudflare, þar sem líkanið Whisper (Workers AI) skilar íslenskum texta og tímum orðanna. Hljóðið er hvorki geymt né skráð í annála hjá okkur og textinn er ekki geymdur á þjóninum; hann kemur aftur í appið og bíður yfirferðar þinnar. Cloudflare notar ekki efni viðskiptavina Workers AI til að þjálfa líkön.
Til að takmarka misnotkun fær hvert tæki nafnlaust leyfi: tilviljunarkennt auðkenni sem tengist hvorki nafni, netfangi né Líf auðkenni. Það er geymt í lyklakippu tækisins. Þjónninn telur hve margar sekúndur af tali hvert leyfi sendir á dag og geymir aðeins dagsetninguna og sekúndufjöldann í átta daga. Cloudflare notar IP-tölu tímabundið til að takmarka fjölda beiðna. Gögn geta verið unnin í gagnaverum Cloudflare utan Íslands.
Upprunahljóðið helst alltaf á tækinu. Ef talgreining næst ekki geturðu reynt aftur síðar; upptakan og skrifin glatast ekki.
fanga-mappan og gerðin+
Á iPhone og iPad geturðu valið að tengja fanga. við gerðin+ á líf.is, þar sem lotur verða að senum og þáttum. Til þess býrðu til einnota tengikóða í gerðin+ meðan þú ert skráð(ur) inn með Líf auðkenni. Eftir það sendir fanga. lotur í einkamöppu þína á Cloudflare: texta, tímalínu, umritanir, merki og röð strax, en hljóð og myndir aðeins á Wi‑Fi nema þú leyfir farsímanet. Myndskeið fara ekki í möppuna.
Mappan er tengd Líf auðkenni þínu og aðeins þú, innskráð(ur) í gerðin+, og tengd tæki þín getið lesið hana. Hún er ekki opinber birting. Þegar þú eyðir lotu í fanga. er henni líka eytt úr möppunni, og miðlar sem ekkert vísar lengur í eru fjarlægðir. Þú getur aftengt tækið í fanga. eða afturkallað það úr gerðin+.
gerðin+ inni í appinu keyrir af tækinu og les loturnar þar beint. Verk sem þú býrð til í henni eru geymd í appinu á tækinu. Á Android er fanga-mappan ekki enn í boði.
Birting á iss!
Þegar þú velur „Birta á iss!“ opnast ritill iss! með efni lotunnar. Þú ræður hvað fer í færsluna. Þegar þú birtir með Líf auðkenni fær iss! höfundarnafn, texta og valda miðla. Hljóð og myndskeið eru vistuð í Cloudflare R2. Opinber færsla hefur eigin slóð. Þú getur breytt henni eða tekið hana af vefnum í Mín skrif á iss!.
Við innsendingu hljóðs eða myndskeiðs samþykkirðu rétthafasamning Lífs. Umsjón Sjónvarpsins getur valið myndskeið og upplestur með mynd til sýningar eftir yfirferð.
Útflutningur og deiling
Þegar þú flytur út lotupakka, MP4, hljóðbók eða afrit af safni býr appið til skrá á tækinu. Hvert hún fer ræðst af því sem þú velur í deilivalmynd tækisins. Afrit hjá viðtakanda eða í annarri þjónustu eru utan fanga.
Engin rakning
fanga. inniheldur engar auglýsingar, engan rakningar- eða greiningarhugbúnað til að rekja notkun. Líf auðkenni notar vefköku fyrir innskráningu við birtingu. Við seljum ekki gögn og notum þau ekki til markaðssetningar.
Varðveisla og eyðing
Efnið á tækinu varðveitist þar til þú eyðir því eða appinu. Eyðing appsins fjarlægir loturnar af tækinu, svo vistaðu afrit af safni fyrst ef þú vilt geyma þær.
Gögn í fanga-möppunni varðveitast þar til þú eyðir lotunum í appinu. Viljir þú láta eyða allri möppunni skaltu senda okkur beiðni á post@líf.is úr sama Líf auðkenni eða með upplýsingum sem staðfesta tengsl þín við hana. Nafnlausa talgreiningarleyfið hverfur með appinu; talningin sem fylgir því eyðist sjálf eftir átta daga.
Réttindi þín og aðstoð
Þú getur óskað aðgangs að persónuupplýsingum þínum, leiðréttingar, eyðingar, takmörkunar vinnslu eða afhendingar gagna þar sem við á, og andmælt vinnslu. Vinnsla vegna talgreiningar og fanga-möppunnar byggir á því að veita þá þjónustu sem þú velur; takmörkun misnotkunar byggir á lögmætum hagsmunum af öruggum rekstri.
Sendu beiðni á post@líf.is. Ef mál varðar barn getur forráðamaður haft samband vegna gagna þess. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar. Persónuverndarupplýsingar Líf-appsins og Líf auðkennis eru á sérstakri síðu.