fanga. fangaðu veröldina.
Eins og þú sérð hana. fanga. er upptökutól Lífs: skrifaðu með röddinni, lestu ljóð og sögur, leiktu persónur og settu myndir við. Hér eru svör við því sem kemur oft upp.
Skrifaðu okkur · post@líf.isHvernig byrja ég?
fanga. opnast beint í lotunni. Ýttu á Taka upp og talaðu; Stöðva vistar tökuna strax. Næsta taka bætist aftan við sömu lotu. Skrifaðu á meðan, eða bættu við mynd með Mynd. Nýtt geymir það sem er opið og byrjar næstu lotu.
Upptaka getur varað í allt að klukkustund og heldur áfram þótt skjárinn læsist. Símtal stöðvar hana og það sem komið er helst.
Hvernig fæ ég texta úr upptökunni?
Hver ný taka fer sjálfkrafa í texta þegar tækið er nettengt. Textinn birtist í Handriti með tíma hvers kafla; snertu tímann til að hlusta þar. Þú getur leiðrétt orðin beint og óbreyttur frumtexti talgreiningarinnar geymist sér.
Talgreining getur misheyrt orð, sérstaklega nöfn. Hlustaðu aftur þegar þig vantar rétta orðalagið. Ef hún næst ekki skaltu velja Texti úr upptöku síðar; upptakan glatast ekki.
Hvað virkar án nets?
Allt nema talgreiningin og fanga-mappan. Upptaka, skrif, myndir, tímalína, hlustun og útflutningur virka án nets. Nýjar tökur bíða í röð og fara í texta þegar samband næst.
Hvar eru loturnar mínar?
Í Safni og möppum. Þar raðarðu lotum í senur, senur í þætti og þætti í seríur, og möppur eru óháðar þeirri röðun. Leitin finnur orð í skrifum og handritum.
Allt er geymt á tækinu. Veldu Afrit og stillingar → Vista afrit af safni áður en þú skiptir um tæki eða eyðir appinu.
Hvernig flyt ég út?
Deila og flytja út á lotusíðunni býr til MP4-myndskeið með hljóði, myndum og skjátexta, eða lotupakka með handriti, SRT- og VTT-texta, tímalínu og frumskrám. Samsetning lotna getur orðið að einni hljóðbók.
Get ég tekið upp á úrinu?
Já, með fanga. á Apple Watch. Upptakan geymist á úrinu þar til síminn hefur vistað hana, svo hún glatast ekki þótt síminn sé fjarri.
Hvað er gerðin+?
gerðin+ er Gerðin, teikni- og brúðuleikhús Lífs, með fanga-möppuna opna. Í Opna í gerðin+ verður lota að senu og samsetning að þætti: teiknaðu yfir, settu brúður við raddirnar og búðu til mynd.
Á iPhone og iPad keyrir gerðin+ inni í appinu. Til að opna loturnar líka í gerðin+ á líf.is tengirðu fanga. við möppuna með kóða úr gerðin+.
Hvernig tilkynni ég villu?
Sendu póst á post@líf.is. Það hjálpar að vita tæki, útgáfu appsins og skrefin sem leiddu að villunni. Sendu aðeins upptökur eða skjámyndir sem þú vilt deila með okkur.
Birta lotu á iss!
Veldu „Birta á iss!“ í lotunni. Á iPhone og iPad er aðgerðin undir „Meira um lotuna“. Þú getur leiðrétt textann, tengt Líf auðkenni og birt. Á iPhone og iPad má senda tímalínuna sem myndljóð. Á Android má senda skrif, myndir og blandaðan upplestur.