líf.is

Gögn félagans þíns

Líf mý/bý · Litli félaginn þinn á Apple Watch og Wear OS.

Uppfært 20. október 2026.

Líf mý/bý er félagaleikur fyrir Apple Watch og Wear OS. Apple-útgáfan 0.4.0 hefur fylgiapp fyrir iPhone. Wear OS-útgáfan 0.1.2 er sjálfstæður leikur á úrinu.

Wear OS: leikurinn og gögnin eru á úrinu

Wear OS-appið geymir nafn leikfélagans, leikframvindu, umönnun, samverustundir og sögusafn í einkamöppu appsins á úrinu. Nafnið er heiti leikfélagans og þarf ekki að vera raunverulegt nafn. Enginn aðgangur, netfang eða Líf auðkenni er notað.

Wear OS-appið hefur enga netheimild og sendir engin leikgögn til okkar. Það inniheldur hvorki auglýsinga- né mælingasöfn, les ekki heilsugögn eða skynjara og biður ekki um hljóðnema, myndavél eða staðsetningu. Sjálfvirkt Android-afrit er óvirkt. Þetta gildir líka þegar börn nota leikinn.

Í Wear OS-útgáfunni er hvorki símahluti, samstilling milli úra né JSON-útflutningur. Veldu „Valmynd → Um litlu heimana → Eyða öllum sögum“ og staðfestu til að hreinsa leikinn. Einnig má eyða appgögnum eða fjarlægja appið í stillingum úrsins. Sögur sem hafa ekki verið afritaðar geta þá glatast.

Google Play og stýrikerfi úrsins vinna með upplýsingar samkvæmt eigin reglum og stillingum. Gögn sem þú sjálf/ur velur að senda stuðningi, til dæmis skjámynd eða lýsingu á villu, eru aðskilin frá staðbundinni leikvistun.

Apple Watch og iPhone

Gögnin á tækjunum

Appið geymir nafn dýrsins, beygingarmyndir þess, slembin lífsferilstímabil, leikframvindu, umönnun, viðburði og varðveittar samverusögur í einkagagnasvæði tækisins. Nafnið er heiti leikfélagans; appið biður ekki um raunverulegt nafn notandans eða innskráningu.

Úrið heldur utan um umönnun og framvindu. Fylgiappið á símanum sendir félagaval og fær afrit stöðu og sagna með WatchConnectivity milli paraðra tækja. Úrviðbótin les lítið staðbundið afrit til að sýna stöðu mýsins í Smart Stack eða á úrskífu.

Við fáum ekki sjálfkrafa nöfn, einkasögur eða leikframvindu frá þessari útgáfu. Hún hefur engan eigin netþjón, auglýsingar, rakningarkóða eða greiningar-SDK. Tenging við Líf auðkenni, líf.is og aðra leiki er ekki hluti þessarar útgáfu.

Afrit að þínu vali

„Varðveita afrit“ opnar skráaval tækisins. Þú velur hvort og hvar JSON-afrit er vistað. Það getur farið í eigin skýjageymslu eða til viðtakanda ef þú velur það. Afritið getur innihaldið nöfn félaga og einkasögur; deildu aðeins því sem þú vilt afhenda viðtakandanum.

Apple og tækjaafrit

Stýrikerfið, afritun tækisins og TestFlight fylgja stillingum og reglum Apple. Gögn og villuupplýsingar sem þú velur að deila í TestFlight eða við stuðning geta borist til umsjónar appsins með þeim upplýsingum sem fylgja deilingunni. Þetta er aðskilið frá staðbundinni leikvistun.

Vistun og eyðing

Sögur varðveitast á tækinu þar til þær eða gögn appsins eru fjarlægð. Eyðing apps eða gagna þess getur fjarlægt staðbundnar sögur sem hafa ekki verið afritaðar. Afrit á paraða tækinu, í skrá sem þú vistaðir eða í tækjaafriti geta áfram verið til og þarf að fjarlægja sérstaklega ef þú vilt eyða þeim líka.

Stuðningur og tengiliður

Félagasamtökin Myndarsögur reka Líf. Við spurningum eða villutilkynningu má hafa samband á post@líf.is. Sendu aðeins þau gögn sem þú vilt að við skoðum. Ekki senda innskráningarorð eða persónuupplýsingar annarra. Persónuupplýsingar sem fylgja eigin stuðningsbeiðni eru notaðar til að svara henni og meðhöndla það mál sem þú sendir.

Þetta er sérstök lýsing á félagaappinu. Önnur þjónusta Líf, sem býður auðkenni, netefni eða opinbera birtingu, hefur viðbótarupplýsingar um þá vinnslu.

Þegar þú opnar þennan vef fær hýsingaraðili tæknilegar upplýsingar vegna tengingarinnar. Nánari upplýsingar um vefþjónustu og hýsingu eru í persónuvernd Líf. Þessi vefur er aðskilinn frá staðbundinni vistun félagaappsins.